18september

ok, ok er ég að fara láta verða af þessu

okai í dag er mjög langt síðan ég bloggaði síðast, ég mundi allt í einu eftir bloggsíðunum mínum og mundi þá eftir því hvað það var nú gaman að blogga og bulla aðeins. Er kanski orðin frekar ryðguð í þessu en jájá...

Það hefur margt breyst síðan ég var seinast að blogga, margt framundan og svona... ég er til dæmis að fara flytja til Noregs 8 Október í litla bæinn Drammen sem er rétt hjá Osló. Þar ætla ég bara að leyta mér að einhverri vinnu og svo ætlum við Heiðar og Hreinsi að leyta okkur að einhverju æfingarhúsnæði og halda áfram að spila tónlist með Robonia.

Talandi um Robonia, við erum að fara spila í Húsinu í kvöld á lítilli rokkhátíð sem heitir Akureyri Rokkar 2009.

fös. 18 sept

19:10- 19:30 Spm
19:40- 20:00 Blinda
20:10 - 20:40 Hælsæri
20:50 - 21:20 Robonia
21:30 - 22:00 Provoke

Lau. 19 sept

19:00- 19:25 Völva
19:35 - 20:00 Earendel
20:10 - 20:35 Nálgunarbann á pabba
20:45 - 21:10 Gruesome Glory
21:20 - 22:00 Disturbing Boner


Tónleikarnir byrja kl. 19:00 bæði kvöldin
Kostar litlar 500 hvort kvöldið
Ekkert aldurstakmark

Allir sem eru töff láta sjá sig heheh ;)


www.myspace.com/roboniaband   ef þið hafið áhuga á að tékka á lögunum okkar.

Það verður svo geggjað gaman í kvöld, fyrst er það að spila á okkar fyrsta giggi, spennandi að sjá hvernig þetta á eftir að ganga, svo er það bara að rífa upp ölið, hella í sig og fara á fyllerí eins og hverjum góðum manni ber að gera. Síðan strax um morguninn eða aaahh segjum um hádegi þá er það bara að bruna beinustu leið suður og þá er tattoo tími hjá mér kl 7 um kvöldið. ég þarf kanski að passa að verða ekki of hýfuð í kvöld uppá það að það lýði ekki yfir mig í tattooinu hehe ;) 


En já mæli með að allir sem eru ekki aumingjar horfi á nýa Rammstein myndbandið við lagið Pussy, það er brutal Awsome hahaha vá hvað ég hló, og já þetta var frekar shocking en auðvitað voru það Rammstein sem koma fyrstir með svona myndband, vá hvað ég elska þá, vill líka þakka þeim fyrir að sýna mér their dingaling.. :) En já ætla samt að biðja ykkur viðkvæmu sálir að horfa ekki á þetta myndband


http://visit-x.net/rammstein/

Rammstein


Dagný kveður að sinni og hver veit nema ég eigi eftir að blogga aftur

gular hjólabuxur eru lotterí

18. september 2009 klukkan 13:05
Dagný Elísa Halldórsdóttir
Engin athugasemd
24febrúar

TIL HAMINGJU ÍSLAND, ARE YOU HAPPY NOW!

ÉG ÞOLI EKKI EUROBANDIÐ! 


24. febrúar 2008 klukkan 15:58
Dagný Elísa Halldórsdóttir
3 athugasemdir
16október

dansi dansi tröllin mín

ok! Tíminn semsagt líður. Það er víst staðreynd!
Skólinn er strax hálfnaður. Það fer víst að koma nóvember og þar á eftir desember! Jólin!
Ameríkan! Nýtt ár!

Þetta er skuggalega fljótt að lýða.

já þessa daganna er ég búin að vera dugleg að djamma og ég held það sé henni ástu að þakka, henni fannst svo gott að komast aftur í íslenska sóðaskapinn og ekki neita ég mér í þá för!

well... Vorum að spila 6 okt með Ten steps away og silent rivers, Þetta var bara ógeðslega gaman og vel var mætt! vá það eru 2 vikur síðan.. Þarna sjáiði þetta er ótrúlegt.. tíminn líður!

Það kvöld tók ég besta fylleríið mitt í langann tíma.. enntist lengur en hreinsi...

og ég er ekki frá því að gamla sjalla dýrið sem hvíldi í mér á mínum yngri árum sé að láta ljós sitt skína á ný! ég hataði sjallann í 2 ár eða svo... En nú er þetta allt að koma aftur.. ég meira segja drullaðist inn á No Request um helgina! whatttðaa...

Reyndar þá var gaman... En það var væntanlega bara áfengið að tala!!!
well ég hef bara absólútlí voða lítið að segja...


ég get þó sagt eitt.... EKKI SJÁ ÍSLENSKA DANSFLOKKINN!!! ÞETTA VAR SVO LEIÐINLEGT!!!!

fyrsta atriðið var einhvernveginn illa leikið dans leikrit.. or some....
atriði númer 2 var svona ... byrjaði vel.. mjög flott tónlist... samt frekar boring atriði... ég tók af mér gleraugun horfði á dansinn í móðu... þá varð hann betri.. en svo lokaði ég bara alveg augunum og hlustaði á þessi töff hljóð og ýmindaði mér betri dans..

seinasta atriðið var bara eins og snýtt úr nös á fyrsta atriðinu.. Alltaf sömu helvítis dansmúvin, og kjánalegur húmor! þetta var eins og að vera á 2 tíma löngum endurtekningar dansi.... Allir voru eikkvað voða obsessed yfir höndunum á sér!!!! og ég borgaði 3100 kr fyrir ÞETTA!!!

ég hef farið á danssýningar erlendis sem að voru svo miklu skemmtilegri og bara fjölhæfari og flottari... Þar tók maður virkilega eftir fólkinu og gat skilið það í sundur!!! þannig að þetta var bara NOT for me!

btw. Gaurinn sem kóreografaði fyrsta dansinn , er ekki skemmtilegur dansari..!!!! jii

ok þurfti að koma þessu frá mér!!!

well... bless!!!:)
16. október 2007 klukkan 15:33
Dagný Elísa Halldórsdóttir
7 athugasemdir
22ágúst

sumarið sem lá ekki í dvala.

Ok! Hér kemur það!

Skólinn byrjar aftur á morgunn, eða ég sækji stundatöfluna á morgunn mikið fjör og mikið gaman. Sumarið er búið að vera alveg útkeyrt bara út í gegn. Er búin að vera vinna næstum alla morgna og öll kvöld. En nú er ég samt hætt í Heimaþjónustunni sem var alveg ágætt bara!

sitthvað í fréttum hjá mér jájá. Ég er búin að pannta mér flug til Florida 25 desember til 9 janúar. Við Hreinsi ætlum að skella okkur í heimsókn til Ástu og Gunna. Reyndar er Ásta að koma heim 1 september en hún ætlar að fljúga með okkur um jólin back to Florida. :)

Maður þarf virkilega að fara reyna hemja alla peningaeyðslu það er alveg á hreinu held ég ef ég ætla að reyna fara svona mikið út.

ÞAÐ ER BARA ÞANNIG AÐ EF MÉR LEIÐIST ÞÁ ANNAÐ HVORT EYÐI ÉG PENINGUM EÐA EYÐI MÖRGUM KLUKKUTÍMUM Í AÐ LEYTA AÐ VESKINU MÍNU!

Allaveganna þá eru margar utanlandsferðir hjá mér á næstunni. Fer líka til sólarlanda um páskanna, samt veit ég ekki hvert. Og svo ætlum við aftur á Dowlnload á næsta ári. Svo er það ein famelíu ferð næsta sumar. Þannig það er nóg að gera hjá mér þessa daganna!


Núna um helgina þá ætlum við að halda suður á bógin, til Rvk eða réttara sagt til Hverargerðis það sem við ætlum að troða upp á Blómstrandi dögum. Ekki spurja mig hvað það er... Held það sé einhverskonar mini menningarvaka:) Bál, brundur og læti:)

jæja hef þetta ekki lengra í bili.....

ps. ég náði að djamma til lokun á föstudaginn... og ég er ekki að grínast!

kv. Dagný Elísa


22. ágúst 2007 klukkan 15:27
Dagný Elísa Halldórsdóttir
11 athugasemdir
11júlí

Sviðamelur

Góðan dag. í dag er sá dagur er ég vinn bara til hálf 4 og kem síðan heim og fer ekki að vinna í bíóinu heldur fer og þríf klósettið heima hjá mér. Því jú það er ógeðslegt...

Undarlegt ég er búin að þrífa þrjú klósett á dag í næstum því 2 vikur en ekki nenni ég að þrífa neitt heima hjá mér! What's one more? spyr gamall maður með jógurt í annari og kúst í hinni...Maðurinn hét Gurti.

Já Það er nú langur tími liðin síðan ég seinast ritaði orð mín á þessi spjöld og ábyggilega eina ástæðan fyrir því að ég er að rita hér er að ég nenni einfaldlega ekki að standa upp því bíður mín það að þrífa klósettið.. Sem í rauninni tekur aðeins 10 mínútur að þrífa. ég hugsa til Gurta gamla mér jógurtið. What's one more..?

já one more er allaveganna eitt í viðbót, og alltaf er það nú eitthvað þannig ég er hætt að skilja þessar spurningar.

Ein megin ástæðan fyrir því að ég byrjaði að blogga er að ég ætla bara að auglýsa aðeins.... Við í The Ones erum komin með nýtt lag inn á rokk.is og inn á myspace síðunna okkar sem hljómar eilítið og bara alveg eins og þetta hérna.
www.myspace.com/theonesiceland
Tékk it át. !

og nú býst ég við því að er ég kveð tek ég á móti hugsunum ykkar kl 16:00 þar sem þið sendið mér hamingju óskir fyrir að hafa þvegið klósettið.. nú er klukkan rúmlega 10 mínútur í 5.

Takk og bless!

- Dagný Elísa Halldórsdóttir
11. júlí 2007 klukkan 16:53
Dagný Elísa Halldórsdóttir
16 athugasemdir
13júní

Nefrennsli, hálsbólga en mikil hamingja!

Nefrennsli, hor í hálsi og rám rödd... Sumum finnst það kanski sexy..
En, Þetta fæ ég rétt fyrir 2 gigg... Og hvað getur maður gert! EKKERT

Eg var að koma úr Englandi í gær. Þetta var rosaleg ferð, maður léttist um nokkur kíló og brann í andliti og öxlum vegna hita...
Fórum semsagt á Download Festival sem var nú meira Ævintýrið...

Mættum 2 dögum fyrir tónleikanna á tjaldsvæðið og var þá mikill mannfjöldi þegar mættur. Tjaldsvæðið var alveg huge stórt hef sjaldan séð annað eins. Þarna mættu um 90 þúsund manns og meiri skítafýlu hef ég aldrei fundið...
Þarna var að finna tívolí tæki og geðveikar básabúðir á hverju strái... Þarna var meira segja verið að selja bongs og allskyns dópistsa stuff en ekkert dóp var hægt að kaupa í búðunum. Það var hægt að reykja kíwí í svona stórum bongum...á Bong svæðinu...

Það var mjög sjaldgæft að maður sæti hliðin á eikkerjum sem var ekki að reykja, og ennþá sjaldgæfara að sitja hliðin á eikkerjum sem reykti venjulegar sígarettur.... Þarna  reyktu nærrum því allir Hass og það þótti ósköp venjulegt og ekki var fólk að fela það!


Við fótbrotnuðum næstum því öll með tölu á Korn.... ég sat uppá Grindverkinu hliðin sviðinu nokkrum metrum frá, allt var brjálað strax í fyrsta lagi.... Fólkið sturlaðist allir að reyna bjarga sjálfum sér, margir tróðust undir og actually handlegsbrutu sig og fleira... Vonandi dó engin... veit ekki.... Síðan fór allir að ýta á grindverkið sem ég sat á, sem var frejar þykkt og ætti undir venjulegum kringumstæðum að vera traust, það var úr áli eða eikkvað, og ég festist með lappirnar niðri... Hreinsi reyndi að ýta liðinu frá mér en ég kramdist þarna og komst ekkert. Þetta var eins og að reyna bifa flutningabíl fullum af fílum með niðurgang....síðan náði ég í bretann fyrir aftan mig sem náði að hífa mig yfir. Svo brotnaði grindverkið! Við með lappirnar fasta á milli ó svo hrædd... Þetta var svona móment sem við virkilega óttuðumstum líf okkar...

Það var samt þokkalega þess virði að hafa verið þarna, að sjá þá og svo var Joey Jordison á trommum.

Eftir nokkur lög gátum við ekki meira, og fórum yfir á My Chemical Romance... Þá náði maður að njóta þess betur að vera á tónleikum og minna um brjálaði spítthausa.

Við tókum aðeins eitt fyllerí á öllum þessum 5 dögum sem við vorum á Download svæðinu.... og það var eftir föstudagskvöldið. Maður var hreinlega bara uppgefinn eftir hverja rónleika og allt labbið... Við komumst einu sinnu í sturtu, og við þurftum til þess að bíða í 2 km langri röð! Brjálæði...

Þegar maður gekk þarna um voru mold ský útum allt á tjaldsvæðunum, maður gekk á malarvegum og þú getur rétt svo ýmindað þér alla sýklana þarna. Ég náði mér einmitt í einn feitan sýkladjöful. Sunnudaginn vaknaði ég með furðulegustu hálsbólgu sem ég hef á ævinni fengið! ég talaði eins og Gremlings, og söng eins og Macy Gray eða versta kókaín hóra.

Laugardagurinn var geggjaður, það var bjáluð sól, hún var svo geggjað sterk.

Laugardagurinn: Dagurinn sem ég sá Marylin Manson, dagurinn sem var skrýtinn, Vá það er furðulegt að sjá hann. Maður áttar sig fyrst á því þá... Vá gaurinn er til í alvöru.

Þetta var mjög skrýtið, greyjið gutttin er bara búin á því, hann þurfti að fá súrefni úr grímu á milli laga, búin að dópa aðeins of mikið kanski....!!!

Sunnudagurinn, Dagurinn sem ég sá Corey Taylor og Amy Lee ásamt fleirum. Gleymist seint!

ég sagði mikið sem ég hefði mátt sleppa... td


- Var að bíða eftir Linkin Park, og allir voru að kasta vassflöskum í hvor aðra og þetta leit út eins og flösku ský...
þá segji ég: Afhverju fæ ég enga flösku í mig ég er svo þyrst.... Þá einmitt verð ég fyrir 5 fkn flöskum í röð, og ái það var vont.
-Næst þá fer ég að tala um hvað ég brenn eiginlega aldrei.... eftir svona klukkutíma er ég með rauðustu axlir í heimi og nefið á mér mynnti vel á Rúdolf.
- Þriðjudagurinn fyrir Download förum við að versla, verlsum helling af DVD og ég segji: Vonandi verð ég veik og þegar ég kem heim get ég horft á DVD allan daginn... og viti menn .. TATATTA ég er helvíti tussuleg með hor og slef.

Þegar haldið var aftur til Nottingham var farið beinustu leið í sturtu! Daginn eftir var verslað aðeins of mikið...
Við Hreinsi keyptum okkur 24 dvd myndir... úpps.. og hann fór í meira tattú...

Við fengum síðan 3 tíma svefn, tókum taxa að bus station, og ég sver það. Taxa gaurinn var ekkert smá grunsamlegur, hann leyfði okkur ekki að setja neitt í skottið. Sagði að við kæmum öllu á milli okkar. Þegar við nálguðumst rútustöðina heyrðum við með skrýtinni rödd , sem lýktist barni en samt ekki, og hún sagði maaammmmyy eða eikkva í þá áttina og við fengum ógeðslegasta hnút í magan sem ég hef á æfinni fengið . Við borguðum gaurnum og hlupum út. Vonandi var þetta ekki Madeline þá sé ég eftir því að hafa ekki opnað skottið!
Foookk ég verð bara hrædd af því að hugsa um þetta!

Rútuferðin var misheppnuð, við sváfum í 3 tíma og vorum ekki komin mikið lengra þegar við vöknuðum vegna mikillar umferðar. Það var bara spurning hvort við myndum ná fluginu. Fengum síðan taxa til að taka við okkur og fara með okkur restina af leiðinni. Hann var tvisvar sinnum næstum því búin að keyra aftan á.

Loksins komumst við á flugvöllinn. Viti menn, það var búið að seinka fluginu! hah mjög fyndið og allt það!
Svo var það flugferðinn, sem mér þótti pínu bumpy, ég var svo hrædd! hehe engin nema ég samt!

Svo komum við á Keflarvíkur flugvöll, og ég var að fara ná í bíllyklana oní tösku, en NEI hann Hreinn Logi Gunnarsson gleymdi jakkanum sínum úti, og þar voru bíllyklarnir... Sem betur fer voru aukalyklar í bílnum, en það kostaði okkur 4000 kr að ná lyklunum út!

Við ætluðum á American Style þegar við komum heim en hættum við vegna mikillar fátæktar því peningurinn fór í að fá bílinn aftur! hehehe

En þegar litið er til bara var þetta svo mikil snilldar ferð í alla staði og svo mikið ævintýri að ég ætla aftur á næsta ári ef Line up-ið verður jafn glimrandi geggjað!


Takk fyrir að nenna lesa allt þetta! Þú stóðst þig vel. Það er langt síðan ég hef bloggað svona langt..

ég kveð.

- Dagný Elísa Halldórsdóttir

13. júní 2007 klukkan 15:30
Dagný Elísa Halldórsdóttir
24 athugasemdir
01júní

Dagga Drull hefur sagt ok...

Jæja... Ég er alveg að fara til útlanda... Eftir akkúratt 4 daga... Erum að fara á Egilstaði að spila á morgunn, það verður áhugavert að sjá hvernig það fer hah.. humm.. já....

ég hata að keyra utanbæjar ég er svo geggjað bílhrædd... fokki.. svo er náttlega flugferð eftir, ég er svo geðveikkt flughrædd, verð að muna að kaupa mér róandi... Já ég tek róandi... Annars læt ég eins og histerísk gömul kona sem kann ekki að hjóla!

Alltaf þegar ég er að labba inn um þarna göngin sem maður labbar í gegnum áður en maður fer í flugvélina þá líður mér alltaf eins og ég sé að ganga inn í dauðan!

Vonandi lifum við flugferðina af, því mér langar svo geggjað að komast á tónleikanna sem við erum að fara á.

Umm, ég er semsagt komin í frí úr vinnunni... Fer ekki aftur í vinnuna fyrr en eikkern tíman já... 16 júni eða eikkva.. :)

Vá hvað mig langar geðveikt mikið að flytja eikkvert út og fara í skóla eða bara vinna... Skiptir ekki... Langar bara að komast héðan og já komast héðan!

Afhverju finnst mér Marylin Manson Hot?
Geðveikt hott..



Er það eðlilegt? hehe.. grrr

ummjá.... ég segji nú bless

bless
kv. Dagga Drull

01. júní 2007 klukkan 14:49
Dagný Elísa Halldórsdóttir
7 athugasemdir
20maí

Earth Intruders

þá er skólinn búin... Loksins getur maður farið að vinna og eignast smá pening.
Mér gekk bara mjög vel í prófunum.. það er alveg óhætt að segja það
 
ísl403:6 
ens403:8
stæ102:9
myl314:9
myl233:9
myl303:9
mys402:9


Vá hvað tíminn líður samt geggjað hratt. Eftir 17 daga verð ég í Englandi að hafa það gott:D og eftir 13 daga munum við í The Ones spila okkar fyrsta gigg saman á Egilstöðum á Road Rage Festival ásamt Brain Police, Atómstöðinni og fleirum góðum böndum...!!! Tónleikarnir verða haldnir í Selsskógi 2 Júní.. Allir að mæta..ójee!

Vonum bara að það fari að hlýna í veðri... Það væri fínt að fá smá sumarsól...:D

Umm, ég er búin að setja inn myndir sem ég stal frá Alvildu og Ástu bíkos I'm like kinda Evil!

í gær þá hélt hún Alvilda uppá afmælið sitt, voða gaman, ég bakaði ammlisköku handa henni, svo vorum við með bollu, jelly shots og allskyns fínerí... Mjög gaman!;)


Hann Hreinsi minn er búin að ná Sveinsprófinu:D Veii Klöppum Fyrir Því!!! Meira segja hæstur í bekknum... Össs karlinn sko!!!;)

En já ég hef bara ekkert fleira að segja í bili... Maður kanski nennir að bæta einhverju við þetta blogg síðar!!!

I luuuv Bjork Gudmundsdottir

kv. Dagný
20. maí 2007 klukkan 16:17
Dagný Elísa Halldórsdóttir
8 athugasemdir
15maí

Ans.......ans!

Jæja ætli það sé ekki best að blogga aftur

Prófin eru alveg að verða búin, á eitt próf eftir og er það á föstudaginn.
Myndlistarsaga 403, úff hvað það verður gott að vera búin með alla þessa myndlistasögu...
En já mér er bara búið að ganga helvíti vel þessa önnina í skólanum
er búin að fá útur 4 fögum
fékk 9 í myndlist, 9 í skúptúrgerð, 8 í ensku og eins sæta 6:u í íslensku,

Þakka bara guði fyrir að hafa náð íslensku, ekkert smá erfitt.

Gunni gamli er að flytja til Bandaríkjanna á föstudaginn, og erum við að fara útað borða öll saman í kvöld á strikið. mmm ég er svöng, ég fór og leitaði útum allt hús að klinki til þess að eiga efni á þessari matarferð, og fann 1000kr í einakrónum sem ég fór með í bankann:D haha

Það styttist í að maður fer út, ég á allaveganna 100 þús til að eyða. Ætla samt að fara sparlega í þetta haha:D

DJÖFULL VARÐ ÉG REIÐ ÞEGAR ÉG VAR AÐ HORFA Á EUROVISION OG ÞAÐ VAR BARA ALLT Í EINU CUTTAÐ Á ÞAÐ Í ÚRSLITUNUM OG SÝNT HELVÍTIS ANSKOTANS KOSNINGASJÓNVARPIÐ!!! HVAÐA MANNFJANDA ER EKKI NÁKVÆMLEGA SAMA HVER STAÐAN ER Í ÞESSUM KOSNINGUM UM 11 LEITIÐ!!! AAAAHHHHH
ÉG VARÐ SVO REIÐ AÐ ÉG HRINGDI Í RÚV ALVEG BRJÁLUÐ, EN SÍÐAR KOMÍ LJÓS AÐ ÉG VAR AÐ HRINGJA Í ÚTVARPIÐ,,,ÚPPPS....!!!

EN OK, ég jafnaði mig. Þangað til ég heyrði að ógeðiskellinginn frá Serbíu hafði unnið.... Litla kellinnginn sem lítur út eins og Hiro Nakamara í Heroes. ég er viss um að hún hafi öskar JATTA JATTA þegar hún vann.... Anskotans helvíti.. ÖMURLEGT LAG. ÖMURLEG KEPPNI. SVÍAR OG FINNAR VORU LANG BESTIR. og ég er ekki að segja það bara afþví að þetta eru norðurlöndin..... vá ég vissi eki að ég tæki þetta svona nærri mér....


Takk takk, ég er búin að laga til í herberginu mínu ryksuga og þurka af...
Verði þér að góðu!!!
BLESS!!!

kv. Dagný


15. maí 2007 klukkan 16:47
Dagný Elísa Halldórsdóttir
8 athugasemdir
04maí

Down with all randaflys in the universe

well það er alltaf jafn gaman að lifa er það ekki...
En alltaf þegar ég er að fara spila einhverstaðar þá tekst mér að fá hálsbólgu..
Tala ekki um þegar söngvakeppnin var þarna í denn, já þá hitti nú skrambi vel á.. og þegar ég átti að vera á eikkerju konukvöldi í sjallanum .. já þá fékk ég hálsbólgu.. já og þarna þegar ég átti að vera eikkva á glerártorgi .. hey þá fékk ég líka hálsbólgu...
já og núna þegar við erum að fara spila á vélsmiðjunni á fimmtudaginn.. tja ætli ég verði ekki bara ennþá með hálsbólgu ef ekki bara veik....
éger farin að halda að ég sé með ofnæmi fyrir röddini á mér... Er mér bara ekkert ætlað að syngja! hehe... bakteríurnar í líkamanum mínum eru allaveganna alltaf til í að skella smá sýkingum og bakteríum í minn háls.. hhehe... 
 
já þetta kemur allt saman í ljós með tímanum..

prófin eru að byrja... fyrsta prófið er á mánudaginn.. er buin að læra smá í dag, maður er svo skynsamur sko.. ;)

þá er það líka komið á hreint... ég fæ að sleppa við stærðfræði lokaprófið þar sem ég náði yfir 7 á öllum heimadæmum og prófum. TATATA!!! fékk meira segja 9 á seinasta prófi.. djö ánægð með mig sko... þó að sumum finnst hin Gamla Dagný vera týnd inní einhverri nördaveru... þá líkar mér eiginlega bara betur við mig skynsama en kærulausa..hehe

í dag var ég að vinna á vífilfell í fyrsta skipti. Var í svona uppröðum, oh my þvílíka stuðið;) fylla á kæla all day! en þaðer þó vel borgað og maður er vanur að gera þetta í bíóinu, þó ekki allan daginn en.. what ever.. its bara nice... jájájá!!!

hef ei fleira að segja...

kv. BýfluguHATARINN!
04. maí 2007 klukkan 19:56
Dagný Elísa Halldórsdóttir
16 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Dagný Elísa Halldórsdóttir

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit